Strč prst skrz krk

2007-11-23

Malbikshúðuð lungu

Flokkað undir: Hjólreiðar, Ýmislegt — Jón Lárus @ 20:46

Ekkert víst að það sé sniðugt að hjóla við aðstæður eins og voru í bænum í gær. Kalt og stillt og svifryksstuðullinn fór upp úr öllu valdi. Fór hæst í 250 μg á rúmmetra og meðaltal dagsins yfir 100 μg á rúmmetra. Þetta er ógeðslega mikið. Enda astmaveiku fólki ráðlagt að halda sig frá umferðaræðum og helst bara innan dyra. Til samanburðar þá voru gildin í dag hæst eitthvað um 17 og meðaltalið um 14.

3 Ummæli »

  1. Á ég að fara og kaupa handa þér gasgrímu?

    Ummæli af hildigunnur — 2007-11-23 @ 23:19 | Reply

  2. úff, ekki líst mér á. eins gott að þú reykir ekki líka..nógu óhollt að hjóla í umferðinni;)

    Ummæli af baun — 2007-11-24 @ 12:39 | Reply

  3. Tja, þá fyrst myndi maður nú vekja athygli. Já og baun, þetta er örugglega ekki mjög hollt.

    Ummæli af Jón Lárus — 2007-11-24 @ 14:54 | Reply


RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Skrá ummæli

Bloggaðu hjá WordPress.com.