spryngi helst ekki á fjallahjólum. Þegar ég kom út úr vinnunni í dag var sprungið á hjólinu. Í annað skipti á stuttum tíma. Gat samt hjólað heim með því að koma við á nokkrum bensínstöðvum og pumpa í dekkið. Var svo að enda við að gera við dekkið og pumpa aftur í. Ekki akkúrat það sem ég var búinn að hugsa mér að gera. Samt ennþá skelfilegri tilhugsun að vakna snemma í fyrramálið til að lappa upp á dekkið!
2008-04-7
2 Ummæli »
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
Það er heldur ekkert normal hvað er mikið af grjóti á hjólastígnum á parti af leiðinni. Hlýtur að vera það sem er málið.
Ummæli af hildigunnur — 2008-04-7 @ 23:17 |
Já það brimaði greinilega vel yfir hluta af stígnum um daginn. Barst fullt af grjóti upp á hann, sérstaklega hjá skolphreinsistöðinni við Laugarnes. Það er reyndar búið að sópa því stærsta út fyrir en víða er enn talsvert af smærra grjóti og sandi á stígnum. Hef væntanlega lent á einu slíku.
Ummæli af Jón Lárus — 2008-04-8 @ 22:09 |