með allar þessar hálfvitalegu auglýsingar, sem eru í gangi þessa dagana. Lenti í því að sjá nokkrar auglýsingar meðan ég horfði á formúluna á sunnudaginn. þær voru hver annarri furðulegri. Húsasmiðjuauglýsingaherferðin var samt fáránlegust; fólk með stórt nef og undarlega hárgreiðslu. Hvernig þetta á að hvetja mig til að fara í Húsasmiðjuna er mér hulin ráðgáta. Yfirleitt hefur svona lagað þveröfug áhrif á mig. Held ég sé ekkert að flýta mér í Húsasmiðjuna meðan þessi herferð gengur yfir.
2008-05-13
5 Ummæli »
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
já, sérstaklega þegar það er komið þetta fína BYKO úti á Granda. Ekki það, það er líka okurbúlla, við verslum við Brynju!
Comment af hildigunnur — 2008-05-14 @ 00:01 |
Það er rétt, það er ótrúlega mikið af heimskulegum auglýsingaherferðum í gangi um þessar mundir
Comment af Þorbjörn — 2008-05-14 @ 10:50 |
Heh, já það er satt Þorbjörn. Þetta var bara asnalegasta dæmið. Ekki það eina.
Og já við verslum við Brynju eins mikið og við getum.
Comment af Jón Lárus — 2008-05-14 @ 20:50 |
mér finnst LU kexauglýsingin svo, hvernig á ég að orða það, grrrrrrrGRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR!!!!
Comment af baun — 2008-05-14 @ 21:19 |
Baun, hahahaha. Já, ég var nú alveg búinn að gleyma henni. Hún er hræðileg, svo ekki sé meira sagt!
Comment af Jón Lárus — 2008-05-15 @ 17:11 |