áðan. Þannig var að í gær þá brotnaði stykki, sem festi frambrettið á hjólinu mínu við gaffalinn. Ég bjóst svosem alveg við því að maður þyrfti að kaupa nýtt bretti, eins og hlutirnir eru orðnir nú til dags. Allavega, við Hildigunnur fórum í smá útréttingar í morgun og meðal annars í Markið, þar sem ég ætlaði að athuga hvort fengist svona festing. Afgreiðslumaðurinn, sem tók á móti okkur sagði fyrst: “Ég er hræddur um að þú verðir að kaupa nýtt bretti.” Og síðan: “Bíddu aðeins ég ætla að athuga þetta aðeins”. Svo kom hann aftur eftir smá stund: “Heyrðu við áttum svona stykki. Þú mátt bara eiga þetta!” Get ekki annað sagt en Markið hafi skorað mörg stig hjá mér þarna.
2008-06-7
2 Ummæli »
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
Þetta er sko almennilegt!
Ummæli af Harpa J — 2008-06-7 @ 22:45 |
Jámm, enda varð ég alveg orðlaus. Maður er ekkert vanur svona trakteringum. Yfirleitt slegist um að rýja mann inn að skyrtunni.
Ummæli af Jón Lárus — 2008-06-7 @ 22:55 |