Strč prst skrz krk

2008-07-29

Föðurbróðir minn

Flokkað undir: Fjölskyldan, minning — Jón Lárus @ 23:45

Björn Stefán Lárusson, Bjössi frændi, dó í dag. Þó að hafi verið vitað í nokkra daga að stefndi í þetta þá er maður nú samt ansi niðurdreginn á þessari stundu. Við bjuggum saman í 6 ár þegar ég var í MH og svo síðar í Háskólanum. Það var fínt að deila íbúð með Bjössa. Man ekki eftir því að okkur hafi orðið sundurorða.

Hildigunnur skrifar fallega um hann hér.

Það fór þó aldrei svo

Flokkað undir: Fjölskyldan, Frí — Jón Lárus @ 19:58

að það kæmi ekki sumar. Annar dagurinn á stuttum tíma þar sem hitinn fer upp í a.m.k. 22° hér í bænum. Ekki sem verstur tími til að vera að byrja í fríi. Ég var nefnilega að byrja í þriggja vikna sumarfríi í gær. Ætlum ekki að fara neitt, sem heitið getur. Bara að taka því rólega, fara í hjólatúra, sund, grilla, dytta að húsinu, spila og almennt hafa það gott.

Bloggaðu hjá WordPress.com.