Í látunum við að pakka niður fyrir Lónsferðalagið þá lentu í skottinu á bílnum 2 hægri fótar stígvél fyrir Fífu. Það var allspaugilegt að sjá hana þegar hún var að búa sig undir veiðiferð með frænkum sínum. Mjög undarlegur krummafótur.
2008-08-11
3 Ummæli »
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
Fóru þið upp að vatni fyrir ofan bústaðinn? Sofðu vel með kærri kveðju.
Ummæli af Guðlaug Hestnes — 2008-08-11 @ 23:18 |
jámm, sumir gerðu það allavega, ekki ég, reyndar.
Ummæli af hildigunnur — 2008-08-12 @ 10:11 |
Jú, jú. Ég og krakkarnir fórum. Þvílíkt spennandi fyrir þau að fá að renna fyrir bröndur.
Ummæli af Jón Lárus — 2008-08-13 @ 22:22 |