Strč prst skrz krk

2006-02-11

Sjálfsagt eru einhverjir búnir að sjá þetta. Fékk …

Filed under: Setningar — Jón Lárus @ 23:48

Sjálfsagt eru einhverjir búnir að sjá þetta. Fékk þetta sent í pósti og mér fannst þetta bara svo mikil snilld að ég varð að skella þessu inn:

Bekkjarafmælið
Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var
að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.
Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður og Hreinn Bolli.
Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar
Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.
Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.
Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar – “#%=�$&/(=!z#$!/!=!
Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni.
Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum.
Hún var orðin alltof sein í afmælið.

7 athugasemdir »

  1. En Erlendur Lýður mætti ekki.

    Athugasemd af Björn Friðgeir — 2006-02-12 @ 01:41 | Svara

  2. … og ekki Kolbrún Lind…

    Athugasemd af Imba — 2006-02-12 @ 13:57 | Svara

  3. Greinilega ekki allar útgáfur saman komnar þarna. Fyrir utan ofangreind dæmi vantar Sig. systurnar (Drífu, Vöndu og Brynju). Spurning líka hvar Örvar Oddur var. Samt voru þarna nokkur dæmi sem ég hafði ekki heyrt áður: Egill Daði, Ósk Ýr og Loftur Steinn m.a.

    Athugasemd af StrcPrstSkrzKrk. — 2006-02-12 @ 14:38 | Svara

  4. Sædís Líf er frábært dæmi 😀

    Athugasemd af Hildigunnur — 2006-02-13 @ 11:50 | Svara

  5. æEG hæeld hún héti Sædís Hlíf…

    Athugasemd af Tumi — 2006-02-26 @ 20:19 | Svara

  6. Hmmm… þetta átti sem sagt að vera „Ég hélt hún héti Sædís Hlíf…“
    Varð fyrir loftsteini. Það er eina skýringin á þessari vitleysu.

    Athugasemd af Tumi — 2006-02-26 @ 20:21 | Svara

  7. hmmm, skiptir eiginlega engu máli, sætishlíf og sætislíf eru borin nákvæmlega eins fram. Sædís Líf meira að segja betur falið, við fengum nokkrar spurningar um hvað væri eiginlega fyndið við aumingjans Sædísi Líf…

    Athugasemd af Hildigunnur — 2006-03-2 @ 01:17 | Svara


RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

Bloggaðu hjá WordPress.com.

%d bloggurum líkar þetta: