Var það ekki Villi borgarstjóri, sem ætlaði aldeilis að taka til hendinni og hreinsa borgina? Ég er búinn að bíða eftir því í allt sumar að eitthvað gerðist hér á Njálsgötunni. Skrapp út í dag og tók mynd af rennusteinunum hér í nágrenninu. Þeir eru að gróa upp. Skrautleg flóra m.a. njólar, fyrir utan ruslið, sem er annar handleggur.
2007-07-7
2 athugasemdir »
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
heh, já, og það er ekki eins og þetta sé eitthvað einsdæmi. Fullt af þessu um allt Skólavörðuholt.
Athugasemd af hildigunnur — 2007-07-7 @ 23:57 |
Held að rennusteinninn bílastæðamegin hafi ekki verið tekinn síðan í hittiðfyrra. Annað mál götumegin. Þar aka sóparar reglulega. Það er bara ekkert nóg. Þetta er ógeðslegt eins og sjá má á myndinni.
Athugasemd af Jón Lárus — 2007-07-8 @ 23:14 |