Vá! Ég skrifaði þessa færslu í lok apríl um uppfærslu á vef vínbúðanna. Ætlaði svo að skoða vefinn hjá þeim í gær. Þá kom í ljós að maður getur ekki enn séð vörulistann hjá þeim. Eftir tvo og hálfan mánuð! Hverslags framkvæmdir eru þetta?! Ég bara á ekki orð.
2007-07-11
2 athugasemdir »
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
Já, þetta er alveg makalaust. Það er hægt að sjá listann í nýjasta vínblaðinu þeirra undir fróðleikur/vínblaðið þeas…. http://vinbud.is/Fróðleikur/Vínblaðið/tabid/325/Default.aspx …. en ekki beint verið að gera það aðgengilegt á meðan á framkvæmdum stendur t.d. með því að setja það á áberandi stað á forsíðu. Myndi þetta gerast hjá svona stóru fyrirtæki á frjálsum markaði?
Athugasemd af Arnar — 2007-07-16 @ 16:08 |
Heh, tæplega. Yfirleitt reyna menn að láta svona raskanir bitna sem minnst á viðskiptavinunum. Að minnsta kosti ekki svo vikum eða mánuðum skipti!
Athugasemd af Jón Lárus — 2007-08-8 @ 22:41 |