Ég var nú kannski svolítið dómharður þegar ég lýsti yfir frati á dýrasta kampavín, sem boðið er til sölu, um daginn. Ég fór og skoðaði málið aðeins og fann þessar upplýsingar um málið. Þarna er væntanlegum kaupendum boðið í kampavínshúsið ásamt fjórum gestum, kampavínið er blandað sérstaklega til að geðjast viðkomandi o.s.frv. o.s.frv.
Ég fer nú samt ekki ofan af því að verðmiðinn (50.000 evrur ef ég man rétt) er nú ansi hár fyrir pakkann. Væntanlega verða nú samt einhverjir til að falla fyrir þessu.
Færðu inn athugasemd