Grrr. Mikið skelfilega fer það í taugarnar á mér fólkið sem hlammar bílunum sínum á miðja gangbraut meðan það bíður á rauðu ljósi. Veldur því að maður verður að taka á sig krók og oft yfir kantsteina í stað þess að renna ljúflega yfir gatnamótin á hjólinu. Lenti á einum slíkum á leiðinni heim úr vinnunni áðan. Síðan ekkert margir dagar liðnir síðan ég lenti í því sama.
Var það ekki annars Elías í einhverri bókinni eftir Auði Haralds. sem reif upp hurðina á einum slíkum bíl og spurði hvort maður ætti að fara í gegn hérna? Maður ætti kannski að fara að taka það upp eftir honum.
hehe, kannski örlítið erfiðara á hjólinu 😀
Athugasemd af hildigunnur — 2008-04-22 @ 08:28 |
Satt segirðu…
Athugasemd af Jón Lárus — 2008-04-23 @ 19:40 |
En hvað þýðir rtna?
Athugasemd af Þorbjörn — 2008-04-29 @ 13:03 |
Þetta átti að vera vafastíxl af rant…
Athugasemd af Jón Lárus — 2008-04-29 @ 17:34 |