Þeystumst landið nánast enda á milli um helgina til að vera við þrefalt afmæli. Fertugsafmæli Helgu svilkonu, sjötugsafmæli mömmu hennar og tíu ára afmæli Brynhildar, dóttur Helgu og Þorbjarnar. Hildigunnur lýsir ferðalaginu í þaula hér í skemmtilegri færslu.
Þurftum síðan að vera komin heim í gær því í dag var Bjössi frændi, sem lést fyrir nokkrum dögum, jarðsettur. Falleg athöfn í góðu veðri. Hljómeyki söng, fólk almennt mjög ánægt með þeirra framlag. Hallveig með sóló. Skilaði því glæsilega eins og við var að búast.
Þessi þeytingur allur hefur hins vegar gert það að verkum að ég er alveg búinn að vera núna. Verður farið snemma í bólið.
Ég steinsofnaði þegar við komum heim úr jarðarförinni og svaf í um tvo og hálfan tíma, þannig að ég er ekki alveg eins svakalega þreytt.
Athugasemd af hildigunnur — 2008-08-11 @ 21:27 |