Strč prst skrz krk

2009-04-29

Grímseyjarbyggð

Filed under: Hm? — Jón Lárus @ 23:43

Ætli að nýja sveitarfélagið, sem varð til við sameiningu Grímseyjar og Akureyrar verði látið heita Grímseyjarbyggð?

Þetta er

Filed under: Nördismi,Ruglið — Jón Lárus @ 21:44

án efa flottasta klukka, sem ég hef séð (kannski fyrir utan klukkuna í ráðhúsinu í Prag).

Nördaklukka

2009-04-23

Var næstum

Filed under: Ýmislegt — Jón Lárus @ 19:37

orðinn undir bíl á leið heim úr boltanum á þriðjudaginn. Hjólaði eftir hjólastígnum á Lönguhlíð. Framhjá bíl, sem var lagt (ólöglega) á eyjunni milli stígsins og akbrautarinnar. Þá allt í einu kom bíll þar framhjá og beygði í veg fyrir mig á leið inn í innkeyrslu. Ég nauðhemlaði og ökumaðurinn reyndar líka þegar hann sá mig. Rétt náðum að afstýra árekstri. Hjartslátturinn í 130 það sem eftir var leiðarinnar.

2009-04-21

Nú er

Filed under: Ýmislegt — Jón Lárus @ 23:58

ég búinn að sjá tvo vorboða og heyra af þeim þriðja á skömmum tíma. Í rigningunum undanfarið hafa ánamaðkar farið á stjá, áðan sá ég hunangsflugudrottningu og svo í morgun voru fréttir um að fyrstu kríurnar væru komnar til landsins. Held að þetta sé ekki spurning núna.

2009-04-19

Allt að koma

Filed under: Garðurinn — Jón Lárus @ 22:11

til í garðinum okkar. Krókusarnir skarta sínu fegursta, rifsið og sólberjarunninn farin að laufgast. Liggur meira að segja við að það þurfi að fara að slá!

Skelli hérna inn nokkrum myndum af krókusunum.

Krókusar

Gulir.

Fjólubláir.

Hvítir.

Vetrargosi.

2009-04-13

Þvuh!

Filed under: Stjórnmál — Jón Lárus @ 23:16

Auglýsing frá sjöllunum: Sköpum 20.000 ný störf. Og þetta frá þeim sem eru nýbúnir að eyða svona 17-18.000 störfum.

Skilgreining II

Filed under: Ruglið — Jón Lárus @ 23:12

Ef þú verður svangur af því að borða réttinn, þá er hann grænmetisréttur.

Af

Filed under: Ýmislegt — Jón Lárus @ 14:10

einhverjum undarlegum ástæðum hefur mig ekkert langað í súkkulaði í dag.

2009-04-11

Páskaeggin

Filed under: Hátíð — Jón Lárus @ 19:54

í ár hjá okkur Fífu líta svona út:

Bæði eggin saman.
Bæði eggin.

og svo mitt egg.
Og svo mitt egg.

Gerðum eggin í gær og settum þau svo saman í dag. Lentum í smá basli, því við fundum ekki mótið fyrir fótinn. Eftir mikla, árangurslausa leit, ákváðum við að láta þau bara liggja. Mótið á örugglega eftir að dúkka upp síðar.

Eldavélarbasl

Filed under: Ýmislegt — Jón Lárus @ 18:37

Urðum fyrir því óhappi um daginn að það brotnaði einn takkinn af eldavélinni okkar. Eini takkinn, sem er úr bakelíti (til einangrunar, því ofninn er rafmagnsofn). Við fórum í Kokku þar sem við keyptum vélina og pöntuðum nýjan svona rofa. Við vorum á nálum um hvort stykkið myndi koma fyrir páska (spurningin um hvort við næðum að hafa páskalambið í ofninum). Fengum síðan að vita á miðvikudaginn að rofinn væri kominn. Ég skaust í Kokku til að sækja hann. Þurfti ekki einu sinni að borga neitt fyrir. Búðareigandinn, sem sá um þetta fyrir okkur, sagði að hún hefði sagt að þetta væri ábyrgðarmál og hún vildi því ekki taka neitt fyrir stykkið.

Allavega, um kvöldið var svo reynt að skipta um rofa. Til að komast að honum þá lá beinast við að opna vélina að ofan. Þar voru nokkrar skrúfur sem hægt var að losa og síðan leit út fyrir að hægt væri að lyfta loki til að komast að rofanum. Þegar ég var búinn að losa skrúfurnar þá var lokið alveg gróið við vélina. Ég þorði heldur ekki að taka mikið á því til að beygla það ekki. Ég reyndi því að taka framhliðina af vélinni en það reyndist ekki ganga. Tókst að lokum að losa lokið með því að smeygja kíttispaða undir jaðarinn á því og losa það þannig smátt og smátt upp.

Búið að losa lokið

Þegar var búið að opna vélina þá komst ég að því að nýi rofinn var allt öðruvísi en sá gamli.

Gamli rofinn

Og sá nýi.

Við nánari skoðun kom þó í ljós að snerturnar á rofunum voru merktar með tölum og bókstöfum. Ég byrjaði því að færa snúrurnar á milli. Gekk vel þangað til alveg í lokin að þá voru ekki til snertur á nýja stykkinu fyrir tvo stafi.
Við þorðum ekki að halda áfram og ákváðum að setja gamla stykkið í. Þegar það var komið í þá fengum við algjört áfall því þegar við prófuðum neistann á vélinni þá neistaði á milli tveggja víra á háspennukeflinu í staðinn fyrir á brennaranum. Við héldum að við hefðum skemmt eitthvað og vorum alveg í mínus yfir þessu.

Morguninn eftir þá púsluðum við vélinni saman aftur og ætluðum að fara að kveikja á gasinu með eldfærum þá kom neisti þegar ég prófaði að skrúfa frá gasinu. Þvílíkur léttir. Þá höfðum við prófað neistann án þess að vera búin að raða brennaranum saman. Loftbilið var þá bara of mikið til að neistinn næði að hlaupa á milli. Rafmagnsverkfræðingurinn ég hefði nú átt að fatta þetta.

Allavega. Í morgun fórum við í Kokku og fengum að vita hvaða rafmagnsverkstæði sér um þjónustu á þessum vélum. Um leið fullvissaði búðareigandinn okkur um að þetta stykki ætti að virka því þetta sama hefði hent einhvern annan.

Eftir helgi verður því haft samband við verkstæðið til að fá þetta í lag. Við notum ofninn nefnilega svo mikið að þetta er mjög óþægilegt ástand.

2009-04-8

Loksins

Filed under: Húsið — Jón Lárus @ 23:59

búinn að mála herbergið hennar Freyju. Ótrúlegt hvað þessi síðustu handtök eru alltaf drjúg.

Eins og venjulega þá tók ég engar myndir áður en ég byrjaði. Svona lítur þetta nú samt út núna.

Freyja er mjög ánægð með breytinguna og þá er tilganginum náð, held ég.

2009-04-7

Algengi

Filed under: Íslenska — Jón Lárus @ 22:39

Ekkert smá hryllilega ljótt orð og í flestum tilvikum líka algerlega óþarft. Hægt að nota t.d. tíðni í staðinn. Pirrar mig óendanlega þegar ég sé þetta orðskrípi. Sama má svo segja um aðgengi.

2009-04-5

Púff,

Filed under: Ýmislegt — Jón Lárus @ 21:14

ekki smá erfitt að gera svona ekki neitt. Maður er alveg örmagna eftir afslöppunarhelgina!

Spurning hvort að

Filed under: Formúla 1 — Jón Lárus @ 20:38

Bernie Ecclestone, sá sem ræður í raun öllu í Formúlu 1 keppninni, sé íslenskur útrásarvíkingur í a.m.k. aðra ættina. Gróðahyggjan er svo alger að ekkert annað kemst að. Engin virðing er borin fyrir sögunni og arfleifðinni. Brautum, sem keppt hefur verið í yfir 50 ár, er hent út af keppnislistanum án þess að blikka auga. Nýjasta snilldin hjá honum var að Ástralíukappaksturinn og Malasíukappaksturinn voru færðir til þannig að keppt væri síðar á deginum. Allt til að Evrópubúar gætu sofið aðeins lengur frameftir. Gekk svo sem allt í lagi í Ástralíu. Hins vegar gleymdu menn að taka í reikninginn (eða horfðu framhjá) að í Malasíu þá rignir alltaf á þessum tíma dags á þessum árstíma. Afleiðingin varð náttúrlega sú að ekki var hægt að ljúka kappakstrinum því brautin breyttist í fljót. Og hver ætli hafi nú staðið fyrir því að dreifa keppnum um allar trissur þótt lítið sé fylgst með F1 annars staðar en í Evrópu? Jú, Bernie Ecclestone.

2009-04-3

Ostaoblátur

Filed under: Ruglið — Jón Lárus @ 18:35

Það er spurningin hvort það væri ekki sniðug vörunýjung?

2009-04-2

Jei,

Filed under: Uncategorized — Jón Lárus @ 23:50

kominn í páskafrí! Kom í ljós að ég átti inni nokkra frídaga (frídagarnir, sem ég hafði samið um höfðu verið rangt skráðir og ég ruglast í talningunni). Allavega, hélt að ég væri á núllinu en kom í ljós að þetta safnaðist saman í átta frídaga. Þokkalega kúl. Bottomlæn, fæ alvöru páskafrí og á samt eftir fjóra daga. Má notast við það.

Bloggaðu hjá WordPress.com.