Ég er í þannig verkefni núna. Ég er semsagt að vinna í að hreinsa málningu af spjaldahurðunum uppi og gera klárar fyrir sprautun. Er núna búinn að vera í u.þ.b. mánuð með fyrstu hurðina af fimm. Það tók mig um 15 klst. að hreinsa málninguna af hurðinni. Alls gat ég talið 7 eða 8 mismunandi liti allt frá gylltu í beinhvítt. Ég setti málninguna, sem ég skrapaði af hurðinni, í poka og vigtaði þegar ég var búinn að ná henni allri af. Samtals voru þetta 5,3 kg af málningu á einni hurð!
Eins og sést þá sígur þetta í.