Ég ætla að vona að þessi eignarhaldsbreyting (að danska keðjan Bygma sé orðinn eigandi) á Húsasmiðjunni hafi áhrif til góðs á verðlagið þar. Smá dæmi um okrið, sem hefur viðgengist þar, kemur hér:
Ég þurfti að kaupa mér sandpappírsrenning vegna hurðaverkefnisins, sem ég hef áður bloggað um. Kom við í Húsasmiðjunni og festi kaup á 2m löngum bút af sandpappír. Fyrir þetta þurfti ég að borga rúmar 800 kr. (420 eða 430 kall á metrann). Ég reiddi þær af hendi en hugsaði með sjálfum mér: Var þetta ekki svolítið dýrt?
Ekkert mörgum dögum síðar var ég búinn að spæna upp öllum sandpappírnum og skaust út í Brynju á Laugaveginum. Þar voru fáanlegir sandpappírsrenningar og kostuðu þeir á bilinu 190 til 270 kr. eftir grófleika. Litla búðin gat semsagt boðið sandpappírinn á 140 til 260 kr. hagstæðara verði heldur en keðjan!
Ef þetta er ekki okur þá veit ég ekki hvað okur er.
Færðu inn athugasemd